Uppeldi sem virkar

Færniþjálfun og fræðsla um uppeldi barna — vel rannsökuð þekking og hugmyndafræði

Foreldranámskeiðin eru haldin víðsvegar um landið á vegum ýmissa þjónustuaðila, m.a. í Árborg, Reykjanesbæ og á Höfn í Hornafirði, ýmist sem staðnámskeið eða í gegnum fjarfundabúnað.

Leiðbeinendanámskeið eru hönnuð fyrir fagfólk sem vill bæta færni sína við uppeldisráðgjöf og/eða vilja fá réttindi til að gerast leiðbeinendur á foreldranámskeiðum. Stutt framhaldsnámskeið veita réttindi til að halda Leikskólanámskeið.

Leikskólanámskeið eru ætluð fyrir starfsfólk leikskóla. Í því skini var efni foreldranámskeiðanna sérstaklega aðlagað aðstæðum og þörfum leiskóla. Ýmsir leikskólar innan og utan höfuðborgarsvæðis nýta hugmyndafræðina í faglegu starfi.